Líkami í JAFNVÆGI, þolir betur áreiti frá innra- og ytra umhverfi.
Hér leitumst við að finna orsök og ástæður álags einkenna og verkja.
Heildræn og einstaklingsmiðuð meðhöndlun.
Hentar jafnt þeim sem eru að leitast eftir t.d. meðhöndlun á mjóbaksverkjum eftir kyrrsetu á skrifstofu sem og atvinnu íþróttamanni sem vill bæta frammistöðu í sinni íþrótt.
Þú kannast við orðtækið “þetta er allt tengt”, hér hjá Heilsustofunni nýtum við víðtæka þekkingu á samspili og áhrifum á milli kerfa í líkamanum.
Með því að kortleggja verki, einkenni og komast að rót vandans getum við meðhöndlað þig hratt og örugglega.
Fyrsti tími — 20.ooo kr.
Sjáðu hvernig fyrsti tími fer fram í osteópatískri meðhöndlun hjá Sævari á Heilsustofunni.
Áherslur, greining, mat og osteópatísk meðhöndlun (60 mín).
Ath. aðeins bókað við allra fyrstu komu.
Tímar í mðehöndlun
Fyrsti tími — 20.ooo kr.
Greining, mat og osteópatísk meðhöndlun (60 mín).
Ath. aðeins bókað við allra fyrstu komu
Endurkoma — 10.ooo kr.
Osteópatísk meðhöndlun (30 mín).
Áframhaldandi meðhöndlun - Endurkoma - Reglubundið eftirlit
Börn og Krakkar
Ath. Bóka í endurkomu.
Nýburar 0-2 ára (15-30 mín) og Krakkar 3-16 ára (15/30 mín)
Jakob Sigurðsson
Fyrrv. landsliðs- og atvinnumaður í körfubolta
Í hvert skipti sem ég kem til Sævars tekur hann sér tíma til að greina ástand líkama míns og vinnur meðferðina út frá því á mjög skilvirkan og faglegan hátt. Eftir að hafa farið í margar meðhandlanir á mínum atvinnumannaferli í körfubolta get ég staðfest að Sævar er mjög fær í sínu fagi.
Ég finn mikinn mun á mér eftir hverja meðhöndlun, líkami minn er betur stilltur, hreyfingar eru mýkri og finnst mér eins og allt flæði í líkamanum sé mun betra.
Alexander Örn Júlíusson
Leikmaður Vals í handbolta
Ég leitaði til Sævars vegna þrálátra meiðsla í baki. Hann tók vel á móti mér og sýndi mér og mínum meiðslum einlægan áhuga. Eftir ítarlega greiningu á mínum vandamálum hlaut ég hjá honum meðhöndlun og þjálfun. Þá fékk ég einnig leiðbeiningar um styrktaræfingar og teygjur til að sinna samhliða meðferðinni. Meðferðin var öðruvísi en ég hef áður kynnst og lagði Sævar m.a. áherslu á að fræða mig um hvað væri að og af hverju verkirnir tækju sig upp aftur og aftur. Einnig hvað ég þurfti að laga eða varast og endurhæfing á því sem ég þurfti að bæta.
Í stuttu máli þá náði ég loksins bata eftir margra ára þrautagöngu. Mæli ég því hiklaust með Sævari.
Davíð Páll Viðarsson
Eigandi og framkvæmdarstjóri Lava Car Rental